Ný sending af Eneloop hleðslurafhlöðum og hleðslutækjum komin

eneloop sending
eneloop sending


Vinsældir aukast jafnt og þétt enda einstaklega góðar hleðslurafhlöður sem hægt er að treysta á. Við erum með gott úrval af eneloop pakkningum með tveimur í, fjórum í eða átta í og svo sex mismunandi  eneloop hleðslutæki.

eneloop úrvalið hjá okkur

eneloop hleðslutækin

Panasonic Eneloop hleðslurafhlöður
eneloop
Ni-Mh er ein besta hleðslurafhlaðan sem býðst á markaðinum í dag.

eneloop rafhlöður eru sérstaklega vistvænar þar sem þær eru forhlaðnar með sólarorku og endurvinnanlegar.

eneloop kemur forhlaðin og tilbúin til notkunar.

Hægt að hlaða- og afhlaða rafhlöðuna allt að 2100 sinnum. eneloop heldur 90% af hleðslunni eftir eitt ár í geymslu og allt að 70% eftir 10 ár. Þannig að eftir mörg ár í geymslu heldur hún hleðslunni. Margar aðrar rafhlöður tapa hleðslu eftir stuttan tíma í geymslu. eneloop er því góður kostur í tæki sem nota litla orku í langan tíma eins og t.d. fjarstýringar.

Einn af megin kostum eneloop er há spennustaða. Það slökknar á mörgum tækjum ef spennan er lægri en 1.1 Volt. eneloop heldur þessu spennustigi í langan tíma og fer aðeins undir þessi mörk rétt áður en rafhlaðan tæmist. Þetta gerir það að verkum að t.d. flass myndavélar er tilbúið fyrir næstu mynd fyrr en ef notaðar eru flestar aðrar hleðslurafhlöður og mun fyrr en ef notaðar eru venjulegar alkaline rafhlöður.

eneloop hefur yfirburða afköst við 0°C og er jafnvel hægt að nota í allt að -20°C. Stendur sig betur en flestar hleðslurafhlöður við þessar aðstæður.

Hægt að hlaða allar eneloop rafhlöður í venjulegu hleðslutæki sem hleður Ni-Mh rafhlöður. Mælum að sjálfsögðu með eneloop hleðslutækjum.

Þegar skipt er yfir í eneloop hleðslurafhlöður er ekki bara um peningasparnað að ræða heldur dregur einnig úr úrgangi sem er þannig framlag eneloop til umhverfismála og framtíðarheilsu heimsins.


Hafið endilega samband við okkur í síma 562-2130 eða sendið okkur tölvupóst á rafborg@oger.is ef þið hafið áhuga á frekari upplýsingum og viljið panta.